| Stiki aðstoðar Betware við innleiðingu upplýsingaöryggis skv. ISO/IEC 27001 |
|
|
|
| Fimmtudagur, 20. september 2007 11:36 |
|
Share Stiki og Betware gengu nýverið til samstarfs um innleiðingu upplýsingaöryggis hjá Betware. Betware er íslenskt hugbúnaðar- og þjónustufyrirtæki stofnað árið 1998. Stiki hefur á undanförnum árum verið leiðandi í ráðgjöf á sviði upplýsingaöryggis á íslenskum markaði og aðstoðað fjölmörg íslensk fyrirtæki og stofnanir við innleiðingu upplýsingaöryggis. Stiki er öryggis- og gæðavottað skv. ISO/IEC 27001 og ISO 9001. Fyrirtækið er eina fyrirtækið á Íslandi sem hlotið hefur faggildar vottanir á báðum sviðum og það er jafnframt eina ráðgjafarfyrirtækið með vottun skv. ISO/ IEC 27001. Stiki mun aðstoða Betware við innleiðingu upplýsingaöryggis en fyrirtækið stefnir að vottun skv. öryggistaðlinum ISO/ IEC 27001 á næsta ári. Betware hefur einnig fest kaup á áhættumatshugbúnaði Stika, RM Studio, en áhættumat í vinnslu upplýsinga er mikilvægur þáttur í upplýsingaöryggi. “Við hjá Stika erum ánægð með að fá tækifæri til að vinna með Betware við innleiðingu upplýsingaöryggis hjá þeim. Betware er auðvitað gríðarlega spennandi fyrirtæki í miklum vexti og það er okkur ánægja að fá að aðstoða fyrirtækið í því metnaðarfulla ferli. Það er gaman að sjá að íslensk útrásarfyrirtæki eru farin að gera sér grein fyrir mikilvægi þess að vinna skipulega að innleiðingu upplýsingaöryggis en skilningur stjórnenda fer sífellt vaxandi á þessum þætti í góðri stjórnun. Við erum sjálf öryggis-og gæðavottuð og vitum af eigin raun hvaða kosti það hefur að vinna í slíku umhverfi og fara reglulega í gegn um úttektar- og vottunarferli”, segir Svana Helen Björnsdóttir framkvæmdastjóri Stika.
|
Námskeið í boði
Stiki býður námskeið fyrir stjórnendur og starfsmenn í upplýsingaöryggi, gæðamálum og stöðlunum ISO 9001 og ISO 27001. Sjá nánar hér.












Betware sérhæfir sig í gerð tæknilausna fyrir ríkislottó og er brautryðjandi á því sviði. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Reykjavík en auk þess er fyrirtækið með þrjú útibú í Evrópu og Norður-Ameríku. Starfsmenn eru rúmlega 60 í dag en verða væntanlega orðnir um 90 fyrir árslok. Á myndinni má sjá Svönu Helen Björnsdóttur framkvæmdastjóra Stika og Stefán Hrafnkelsson framkvæmdastjóra Betware við undirritun samstarfssamningsins.