| Rafræn skilríki |
|
|
|
| Þriðjudagur, 30. október 2007 11:50 |
|
Share Rafræn skilríki og dreifilyklaskipulag (e. Public key infrastructure, PKI) eru undirstaða fyrir örugga þjónustuveitu yfir Internetið. Þau nýtast meðal annars til auðkenningar, rafrænnar undirritunar og dulkóðunar. Stiki hefur komið að mörgum verkefnum sem snerta dulkóðun, auðkenningu og rafræn skilríki. AuðkenningRafræn skilríki eru örugg tveggja þátta auðkenningarleið (e. two-factor authentication). Auðkenning með rafrænu skilríki krefst skilríkisins sjálfs og lykilorðs eða PIN-númers til að nota það. Æskilegast er að rafræn skilríki séu geymd á smartkorti eða öðrum öruggum miðlum. UndirritunUndirritun með rafrænu skilríki er lagalega janfgild undirritun á pappír með eigin hendi. Hvorki er hægt að falsa rafræna undirritun né breyta undirrituðu skjali án þess að það sjáist. Skjöl með rafrænum undirritunum er því hægt að senda yfir Internetið án þess að uppruna þeirra þurfi að draga í efa. Öruggur tölvupósturTölvupóstur er í eðli sínu afar óöruggur miðill sem helst er hægt að líkja við póstkort. Auðvelt er að senda í annarra nafni eða lesa innihald sendra pósta. Dulkóðun og undirritun með rafrænum skilríkjum eykur hins vegar öryggi tölvupóstsendinga. Innihald tölvupósts má dulkóða þannig að einungis viðtakandinn, sem er handhafi tiltekins rafræns skilríkis, geti afkóðað og lesið. Ennfremur getur handhafi rafræns skilríkis vottað (þ.e. undirritað rafrænt) senda pósta. Viðtakendur þeirra geta þá sannreynt að pósturinn sé í raun frá sendandanum. Önnur notkunFjölmörg tölvukerfi bjóða upp á notkun rafrænna skilríkja fyrir nýja virkni eða aukið öryggi. Þar má nefna dulkóðun skráa eða heilla skráakerfa - t.d. Encrypting File System (EFS) í Windows. DreifilyklaskipulagÍ dreifilyklaskipulagi (PKI) hefur svo kallaður skráningaraðili tekið að sér úthlutun skilríkja til notenda og alla umsjón sem tengist þeim. Skráningaraðilinn ábyrgist jafnframt að skilríkin hafi ratað í réttar hendur. Þjónustuveitendur losna því við stóran hluta notendaumsýslu, þar á meðal notendanöfn og lykilorð ásamt öllu umstanginu sem því fylgir. |
Námskeið í boði
Stiki býður námskeið fyrir stjórnendur og starfsmenn í upplýsingaöryggi, gæðamálum og stöðlunum ISO 9001 og ISO 27001. Sjá nánar hér.












