Vitnisburðir
Ný og endurbætt útgáfa af áhættumatshugbúnaðinum RM Studio er komin út. Í útgáfu 3.0. eru níu staðlar innbyggðir í kerfið sem er mikil og góð viðbót við það. Áður var einungis einn staðall með kerfinu. Notendur geta því valið þann staðal sem þeir vilja fá, einn eða fleiri. Nú gefst notendum kostur á að setja inn ýmsa staðla, framkvæma frávikagreiningu (gap analysis) gagnvart þessum stöðlum. Skýrslukerfið er nú orðið innbyggt í RM Studio og því þarf ekki að keyra skýrslukerfið MS Reporting Server samhliða RM Studio. www.riskmanagementstudio.com |
| Stiki semur við heilbrigðisráðuneytið |
|
|
|
| Þriðjudagur, 10. júní 2008 12:57 |
|
Share Heilbrigðisráðuneytið hefur samið við Stika ehf. um þjónustu og rekstur RAI kerfa fyrir hjúkrunarheimili. Það voru þau Svana Helen Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Stika, og Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, sem undirrituðu samninginn síðdegis. Hann felur í sér að Stiki tekur að sér að annast rekstur, hýsingu og þjónustu RAI (Nursing Home) skráningarkerfis og undirliggjandi gagnasafns fyrir verkkaupa. |
Námskeið í boði
Stiki býður námskeið fyrir stjórnendur og starfsmenn í upplýsingaöryggi, gæðamálum og stöðlunum ISO 9001 og ISO 27001. Sjá nánar hér.













