ÍslenskaEnska

Vitnisburðir

"Orðsporið sem af Stika fer ásamt þeirri kynningu sem stofnunin hefur af fyrirtækinu er að þar fari ábyrgir aðilar sem hafa náð árangri á sínu sviði."

Hafdís Guðmundsdóttir, skrifstofustjóri Fangelsismálastofnunar

Case Studies

Hugbúnaður frá Stika

Riskmanagementstudio.com

Vottanir

bsivottanir

Gold_Partner164x47

ACP_RGB

Stiki og Landlæknisembættið hafa undirritað samstarfssamning Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 04. febrúar 2009 13:01
Share

Stiki og Landlæknisembættið hafa gengið til samninga um rekstur og hýsingu Vistunarmatsskrár. Með samningum tekur Stiki að sér að annast rekstur, hýsingu og þjónustu Vistunarmatsskrár með það að markmiði að tryggja áfram stöðugan rekstur skrárinnar.   Vistunarmatsskrá er rafrænt upplýsingakerfi til að skrá og geyma vistunarmatsupplýsingar og ber landlæknir ábyrgð á skránni. Vistunarmat er faglegt, einstaklingsbundið mat á þörfum einstaklinga fyrir varanlega búsetu á hjúkrunarheimili. Skráning vistunarmats er í höndum vistunarmatsnefnda í hverju heilbrigðisumdæmi fyrir sig.
Vistunarmatsskrá hefur að geyma tölulegar upplýsingar um fjölda þeirra sem óskað hafa eftir vistunarmati, fjölda þeirra sem eiga gilt vistunarmat og fjölda þeirra sem eru búsettir á hjúkrunarheimilum hverju sinni. Einnig endurspeglar Vistunarmatsskrá fjölda þeirra sem eru á biðlista eftir búsetu á hjúkrunarheimilum.
Meðfylgjandi mynd er frá undirskrift samningsins 2. febrúar sl. Frá vinstri. Sigríður Haraldsdóttir sviðsstjóri, Svana Helen Björnsdóttir,  framkvæmdastjóri Stika, Matthías Halldórsson landlæknir og Bjarni Þór Björnsson, tæknilegur framkvæmdastjóri Stika.

 


© Stiki - Information Security - Laugavegur 176 - IS-105 Reykjavik - Phone: +354 5700 600