ÍslenskaEnska

Vitnisburðir

"Við hjá upplýsingatækni- sviði Landspítala Háskólasjúkrahúss erum ánægð með störf Stika og teljum að ferli við innleiðingu upplýsingaöryggis hafi gengið mjög vel."

Ólafur Aðalsteinsson
fyrrverandi deildarstjóri stoðdeildar upplýsingatæknisviðs LSH

Case Studies

Hugbúnaður frá Stika

Riskmanagementstudio.com

Vottanir

bsivottanir

Gold_Partner164x47

ACP_RGB

Frí ráðgjöf til sprotafyrirtækja Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Föstudagur, 04. september 2009 13:44
Share

Meðal þess sem Stiki hefur þekkingu á og reynslu af:

• Vöruþróun, frá hugmynd til markaðsfærslu.
• Útflutningur, m.a. leit að samstarfsaðilum, samningagerð, stofnun útibúa erlendis og erlend samskipti.
• Sölu- og markaðsmál, s.s. markaðsrannsóknir, samkeppnisgreining, sala, sölustjórnun, áætlanagerð, kynningarmál, innri markaðssetning og vefmál.
• Samskipti við fjárfesta, innlenda og erlenda. Ferlið við að fá inn fjárfesti, gerð viðskiptaáætlunar, verðmat fyrirtækis og val á fjárfesti.
• Samskipti við stoðkerfi hins opinbera, t.d. Útflutningsráð, Samtök iðnaðarins, Impru og Rannís. Þátttaka í alþjóðlegum fjárfestaþingum, s.s. European Venture Market og Seed Forum. Þátttaka í Viðskiptasmiðju HR og Klaks.
• Beiting ISO-stjórnunarstaðla, upplýsingaöryggis- og gæðamál, rafræn skilríki, nethögun og fjarskipti.
• Microsoft hugbúnaðarlausnir, m.a. SharePoint, CRM-kerfi og Team Foundation Server.
• Kvik (agile) verkefnastjórnun byggð á sprettum (scrum).

Ásamt því að bjóða fría ráðgjöf til sprotafyrirtækja bjóðum við ýmsa sérfræðiþjónustu á mjög góðu verði, svo sem bókhaldsþjónustu og tölvuþjónustu. Við getum auk þess boðið sprotafyrirtækjum og frumkvöðlum í skyldri starfsemi starfsaðstöðu með skrifborðum og stólum þar sem hægt er að samnýta t.d. kaffi- og fundaraðstöðu, símsvörun og kerfisstjórn. Við hvetjum þig til að kynna þér tilboðið okkar sem gildir til 1. maí 2010. Við tökum vel á móti þér.

 


© Stiki - Information Security - Laugavegur 176 - IS-105 Reykjavik - Phone: +354 5700 600