| BSI staðfestir ISO vottanir STIKA |
|
|
|
| Þriðjudagur, 01. febrúar 2011 09:36 |
|
Share
Stiki telur það afar mikilvægt í framleiðslu og þróun á hugbúnaði sé lögð áhersla á að farið sé eftir ýtrustu gæðakröfum og að upplýsingaöryggi fyrirtækisins sé sem mest. Það hefur best sýnt sig í fjölmiðlun síðustu misserin hversu mikilvægt er að gæta vel að meðferð upplýsinga og trúnaðargagna. Stiki hefur verið leiðandi í ráðgjöf við innleiðingu ISO 27001 staðla á Íslandi en aðstoðar fyrirtæki jafnframt við innleiðingu á fjölmörgum öðrum stöðlum. Stiki framleiðir innleiðingarhugbúnaðinn RM Studio og kom út nú í janúar útgáfa 3.0. |
Námskeið í boði
Stiki býður námskeið fyrir stjórnendur og starfsmenn í upplýsingaöryggi, gæðamálum og stöðlunum ISO 9001 og ISO 27001. Sjá nánar hér.












British Standards Institution (BSI) hefur staðfest vottanir Stika um gæðavottun (ISO 9001) og upplýsinga-, öryggis- og stjórnkerfi (ISO 27001) til næstu þriggja ára. ISO staðlarnir eru alþjóðlegir og viðurkenndir um allan heim. Stiki er fyrsta fyrirtækið á Íslandi sem bæði varð ISO 9001 og ISO 27001 vottað. Stiki er einnig eina fyrirtækið í heiminum sem er ACP meðliðmur utan Bretlands og er Stiki félagsmaður nr. 140. Stiki hlaut fyrst vottanir árið 2002.