Vitnisburðir
Ný og endurbætt útgáfa af áhættumatshugbúnaðinum RM Studio er komin út. Í útgáfu 2.2. er möguleiki á að setja inn fleiri staðla en ISO/IEC 27002 upplýsingaöryggisstaðalinn, sem eins og áður fylgir með hugbúnaðinum. Nú gefst notendum kostur á að setja inn ýmsa staðla, t.d. PCI DSS, CobIT, IT- Grundschutz og Coso, og framkvæmt frávikagreiningu (gap analysis) gagnvart þessum stöðlum.
|
| Stiki hlaut Gæfuspor FKA 2010 |
|
|
|
| Þriðjudagur, 02. mars 2010 11:17 |
|
Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) afhenti sínar árlegu viðurkenningar við hátíðlega athöfn í Perlunni þann 21. janúar s.l. Stiki hlaut Gæfuspor 2010 fyrir að hafa skarað fram úr við að virkja kraft kvenna í sínum röðum, en fjórir af fimm stjórnendum hjá Stika eru konur.
Stiki býður upp á heildarlausnir í upplýsingaöryggismálum; hugbúnað til að meta gæði starfsemi og þjónustu, áhættu í rekstri, greina verkferli og bæta verklag. Viðskiptavinir fyrirtækisins hér heima eru aðallega opinberir aðilar og stærri fyrirtæki – en félagið lumar einnig á alls kyns lausnum fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki; lausnum sem gera þau samkeppnishæfari, skilvirkari og öruggari en ella. Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Stika er einnig formaður Samtaka sprotafyrirtækja. |
Námskeið í boði
Stiki býður námskeið fyrir stjórnendur og starfsmenn í upplýsingaöryggi, gæðamálum og stöðlunum ISO 9001 og ISO 27001. Sjá nánar hér.















