ÍslenskaEnska

Vitnisburðir

Ný og endurbætt útgáfa af áhættumatshugbúnaðinum RM Studio er komin út. Í útgáfu 3.0. eru níu staðlar innbyggðir í kerfið sem er mikil og góð viðbót við það. Áður var einungis einn staðall með kerfinu.  Notendur geta því valið þann staðal sem þeir vilja fá, einn eða fleiri.  Nú gefst notendum kostur á að setja inn ýmsa staðla, framkvæma frávikagreiningu (gap analysis) gagnvart þessum stöðlum.  Skýrslukerfið er nú orðið innbyggt í RM Studio og því þarf ekki að keyra skýrslukerfið MS Reporting Server samhliða RM Studio.  www.riskmanagementstudio.com

Case Studies

Lausnir Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Share

Við þróun hugbúnaðarlausna leggur Stiki sig fram um að þróa vandaðar lausnir sem eru tæknilega sambærilegar við það sem best gerist á hverjum tíma.

Í lausnum Stika eru alþjóðlegir staðlar til grundvallar.

Öryggi hugbúnaðar er hringamiðjan sem lausnir Stika snúast um.

Hugbúnaður Stika er forritaður í forritunarmálunum C# og Delphi.

Mikil áhersla er lögð á samhæfð vinnubrögð þar sem nákvæm greining á þörfum notenda og ítarlegar prófanir í samræmi við þær þarfir eru í brennipunkti.

Hugbúnaðargerðin er vottuð samkvæmt ISO 9000 og ISO/IEC 27001.

Unnið er samkvæmt Agile hugbúnaðarferli Microsoft, Microsoft Solution Framework (MSF).

Hugbúnaðargerð Stika er:

  • Traust
  • Kvik
  • Heiðarleg

Traust

Ferli við hugbúnaðargerð innan Stika eru vottuð skv. ISO 9000 og ISO/IEC 27001. Lögð er áhersla á vandvirkni, öryggi og traust.

Kvik

Hugbúnaðargerðin byggir á aðferðum sem hafa að leiðarljósi stuttar og virkar samskiptaleiðir sem einfaldar og flýtir aðlögun að breytingum.

Heiðarleg

Milli viðskiptavinarins/notandans viljum við að ríki heiðarleiki. Forðast er að slá ryki í augu viðskiptavinarins. Tekið er öllum athugasemdum fagnandi og fúslega er viðurkennt hvar hlutir mega betur fara.

 


© Stiki - Information Security - Laugavegur 176 - IS-105 Reykjavik - Phone: +354 5700 600