ÍslenskaEnska

Vitnisburðir

"Við hjá upplýsingatækni- sviði Landspítala Háskólasjúkrahúss erum ánægð með störf Stika og teljum að ferli við innleiðingu upplýsingaöryggis hafi gengið mjög vel."

Ólafur Aðalsteinsson
fyrrverandi deildarstjóri stoðdeildar upplýsingatæknisviðs LSH

Case Studies

RAI - Home Care Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Stiki RAI Home Care er skráningarkerfi RAI-mats fyrir heimaþjónustu Heilsugæslunnar og Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.

RAI-mat (Raunverulegur Aðbúnaður Íbúa) er aðferð til þess að meta heilsufar og aðbúnað eldri borgara sem þiggja heimahjúkrun.

Stiki RAI Home Care er systurkerfi Stiki RAI Nursing Home. En bæði kerfin nota hina stöðluðu aðferðarfræði RAI-matslyklakerfisins til þess að meta gæði samkvæmt staðlaðri aðferðarfræði RAI-matskerfisins.

Alþjóðleg aðferðafræði við gæðamat á þjónustu í heimaþjónustu Heilsugæslunnar og Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.

Aðferðin varð til í Bandaríkjunum árið 1986 en hefur síðan verið þýdd og staðfærð víða um heim í fjölþjóðlegu samstarfi sem nefnist Inter-RAI. Þátttaka Íslands í þessu samstarfi hófst 1993. Notkun aðferðarinnar er háð höfundarrétti en heilbrigðisráðuneytið hefur gert samning við Inter-RAI sem heimilar Stika notkun RAI-aðferðarinnar í þessu nýja upplýsingakerfi.

Samkvæmt reglugerð er skylt að meta heilsufar og aðbúnað reglulega og byggja matið á RAI-aðferðinni.

Skoðið www.interrai.org/section/view/ til að fá nánari upplýsingar um alþjóðlega inter RAI verkefnið.

 


© Stiki - Information Security - Laugavegur 176 - IS-105 Reykjavik - Phone: +354 5700 600