ÍslenskaEnska

Vitnisburðir

"Orðsporið sem af Stika fer ásamt þeirri kynningu sem stofnunin hefur af fyrirtækinu er að þar fari ábyrgir aðilar sem hafa náð árangri á sínu sviði."

Hafdís Guðmundsdóttir, skrifstofustjóri Fangelsismálastofnunar

Case Studies

RAI - Nursing Home Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Stiki RAI Nursing Home er skráningarkerfi fyrir hjúkrunarheimili til þess að meta gæði og kostnað þjónustu á dvalar- og hjúkrunarheimilum.

RAI-mat (Raunverulegur Aðbúnaður Íbúa) er aðferð til þess að meta gæði og kostnað þjónustu við íbúa á dvalar- og hjúkrunarheimilum. Aðferðin stuðlar þannig að því að bæta aðbúnað og þar með heilsufar íbúa heimilanna.

Alþjóðleg aðferðafræði við gæðamat á þjónustu á dvalar- og hjúkrunarheimilum

Aðferðin varð til í Bandaríkjunum árið 1986 en hefur síðan verið þýdd og staðfærð víða um heim í fjölþjóðlegu samstarfi sem nefnist Inter-RAI. Þátttaka Íslands í þessu samstarfi hófst 1993. Notkun þessarar aðferðar er háð höfundarrétti en heilbrigðisráðuneytið hefur gert samning við Inter-RAI sem heimilar Stika notkun RAI-aðferðarinnar í þessu nýja upplýsingakerfi.

Samkvæmt reglugerð er skylt að meta heilsufar og aðbúnað árlega og byggja matið á RAI-aðferðinni.

RAI Nursing Home kerfið er hýst miðlægt hjá Stika og þjónar dvalar- og hjúkrunarheimilum um land allt. Landlæknisembættið hefur með höndum eftirlitsaðgang að gögnum kerfisins en heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið notar kerfið til þess að meta kostnað við þjónustu heimilanna.

Skoðið ,,Case Studies" um hjúkrunarheimilin Sunnuhlíð og Sóltún sem nota RAI Nursing Home hugbúnaðinn.

Sunnuhlíð
Sóltún (á ensku)

Skoðið www.interrai.org/section/view/ til að fá nánari upplýsingar um alþjóðlega inter RAI verkefnið.

 


© Stiki - Information Security - Laugavegur 176 - IS-105 Reykjavik - Phone: +354 5700 600