ÍslenskaEnska

Vitnisburðir

"Orðsporið sem af Stika fer ásamt þeirri kynningu sem stofnunin hefur af fyrirtækinu er að þar fari ábyrgir aðilar sem hafa náð árangri á sínu sviði."

Hafdís Guðmundsdóttir, skrifstofustjóri Fangelsismálastofnunar

Case Studies

RM Studio Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Share

rmsstudio_color_06102009

Hugbúnaðurinn Risk Management Studio, hér eftir nefnt RM Studio, er ætlaður fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum sem vilja tryggja öryggi í vinnslu upplýsinga. Byggt er á aðferðafræði öryggisstaðlanna ISO/IEC 27002:2005 og ISO/IEC 27001:2005.

Hugbúnaðurinn er byggður upp á nokkrum mismunandi kerfiseiningum. Viðamesta einingin í RM Studio er áhættumatseiningin sem leiðir notanda á skipulagðan máta í gegn um áhættumatsferli. Í RM Studio er jafnframt eignakerfiseining til að skrá upplýsingaeignir.

Hugbúnaðurinn sparar mikla vinnu við gerð áhættumats í vinnslu upplýsinga. Smelltu hér til að skoða kynningu á RM Studio.

Helsti ávinningur notenda:

  • Tímasparnaður
  • Færri ráðgjafatímar
  • Auðvelt að rekja aðgerðir
  • Auðveldar innleiðingu upplýsingaöryggis
  • Öflugur skýrslugjafi
  • Áhættueftirlit og áhættumat

Staðalgreinar úr ISO/IEC 27002:2005 eru innbyggðar í RM Studio kerfið og hefur Stiki gert samning við Staðlaráð Íslands um notkun staðalsins á ensku og íslensku í hugbúnaðinum og greiðir til Staðlaráðs þóknun vegna dreifingar á íslenskum markaði.

RM Studio er Microsoft samhæfður hugbúnaður og þróaður í Microsoft Visual Studio. Hugbúnaðarþróun fer fram skv. sérstöku ferli, Microsoft Solution Framework. Hún er, eins og öll önnur starfsemi Stika, vottuð af British Standards Institution skv. ISO 9001:2008 og ISO/IEC 27001 .

Forveri RM Studio er Stiki OutGuard.

Pantaðu kynningu með því að senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 


© Stiki - Information Security - Laugavegur 176 - IS-105 Reykjavik - Phone: +354 5700 600