ÍslenskaEnska

Vitnisburðir

"Það er ljóst að innleiðing skipulagshandbókarinnar fyrir bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar, er og verður klárlega hornsteinninn í öllu utanumhaldi öryggis- og skipulagsmála fyrir bæjarskrifstofurnar í komandi framtíð."

Stefán Ómar Jónsson, bæjarritari og verkefnisstjóri öryggis- og skipulagsmála á bæjarskrifstofum Mosfellsbæjar

Case Studies

Vistunarmat aldraðra Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Share

Stiki Vistunarmat

Stiki vistunarmat er hluti af heilbrigðisneti matskerfa sem útfært hefur verið af Stika. Kerfið er skráningarkerfi matshópa um vistunarmat aldraðra á dvalarheimilum eða öldrunarstofnunum.

Vistunarmat aldraðra var leitt í lög árið 1990. Með lögunum varð skylt að meta þörf allra sem óskuðu eftir langtímavist á stofnun á sambærilegan hátt. Matinu er skipt í fjóra þætti: Félagslegar aðstæður, líkamlegt atgervi, andlegt atgervi og færni.

Eykur skilvirkni í heilbrigðiskerfinu

Markmiðið er að tryggja að þeir njóti forgangs sem mesta hafa þörf. Matshópar úti um allt land nota vistunarmatskerfið til að skrá umsóknir um vistunarmat á staðlaðan hátt. Gögn vistunarmatskerfisins eru hýst miðlægt hjá Stika.

Umsóknir eru skráðar á biðlista en einn skjólstæðingur getur verið á biðlista fleiri en einnar stofnunar samtímis. Með vistunarmatskerfinu er ekki lengur þörf á umsóknum á pappírsformi sem tvímælalaust eykur skilvirkni í afgreiðslu umsókna um vistun á dvalarheimili eða öldrunarstofnun.

Skoðið http://www.felagsmalaraduneyti.is/malaflokkar/malefni_aldradra/log til að fá nánari upplýsingar.

 


© Stiki - Information Security - Laugavegur 176 - IS-105 Reykjavik - Phone: +354 5700 600