ÍslenskaEnska

Vitnisburðir

"Kreditkort hf. hefur notið sérfræðiaðstoðar Stika við innleiðingu öryggisstaðalsins ISO/IEC 27001. Hefur samstarf Kreditkorts hf. við Stika verið með miklum ágætum."

Nanna Huld Aradóttir
fyrrverandi yfirmaður innri endurskoðunar hjá Kreditkorti

Case Studies

Ráðgjöf og þjónusta Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Share

Stiki veitir ráðgjöf og þjónustu á sviði upplýsingatækni með áherslu á upplýsingaöryggismál.

Á þjónustu- og ráðgjafasviði eru meginþættir starfseminnar þessir:

  • Ráðgjöf vegna innleiðingar öryggisstjórnkerfa skv. viðurkenndum stöðlum
  • Ráðgjöf vegna innleiðingar gæðastjórnkerfa skv. viðurkenndum stöðlum
  • Ráðgjöf á sviði áhættustjórnunar (áhættumat)
  • Gerð skipulagshandbóka, sem eru samtvinnaðar gæða- og upplýsingaöryggishandbækur
  • Ráðgjöf um hönnun netkerfa (nethögun) og fjarskipti
  • Ráðgjöf um samþættingu tölvukerfa
  • Ráðgjöf um gerð áætlana um samfelldan rekstur - viðbragðsáætlana
  • Verkefnastjórnun með áherslu á Scrum aðferðafræði
  • Greining og endurbætur vinnuferla
  • Hýsingarþjónusta fyrir upplýsingakerfi í heilbrigðisþjónustu
  • Innri og ytri úttektir fyrir fyrirtæki og stofnanir, t.d. vegna krafna Persónuverndar eða að beiðni Persónuverndar

Stiki aðstoðar fyrirtæki og stofnanir sem sækjast eftir að fá starfsemi sína vottaða samkvæmt öryggisstaðlinum ISO/IEC 27001 og/eða gæðastaðlinum ISO 9001. Stiki aðstoðaði Landmælingar Íslands við innleiðingu gæðastjórnkerfis.

Stiki veitir einnig aðstoð við uppsetningu netþjóna og útstöðva, dulkóðun gagna og framkvæmir heilleikaprófun gagna.

Að auki sinnir Stiki fræðslu um öryggis- og gæðastaðla, sjá nánar um það hér.

 


© Stiki - Information Security - Laugavegur 178 - IS-105 Reykjavik - Phone: +354 5700 600