ÍslenskaEnska

Vitnisburðir

"Mjög mikilvægt er að vernda viðkvæmar persónuupplýsingar til að gæta réttar einstaklingsins og enn fremur er mjög mikilvægt að upplýsingar séu meðhöndlaðar rétt og unnið vandlega úr þeim af mikilli nákvæmni."

Hafdís Guðmundsdóttir
skrifstofustjóri Fangelsismálastofnunar

Case Studies

Innbrotsprófanir Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Share

Innbrotsprófanir í tölvukerfi.
Innbrotsprófanir í tölvukerfi geta verið misítarleg, tekið á mismunandi þáttum og geta tekið mislangan tíma. Þ.e.a.s. allt frá nokkrum klukkutímum upp í margar vikur.
Það sem felst í innbrotsprófunum er annars vegar mat á öryggisveikleikum tölvukerfis eða netkerfis og hins vegar framkvæmd árása. Reynt er að brjótast inn í tölvukerfin til þess að sjá hversu langt hægt er að komast. Markmiðið með slíkum prófunum er að líkja eftir tölvuþrjóti og gera sér grein fyrir því hversu langt slíkur aðili kæmist.

Veikleikagreining tölvukerfa
Veikleikagreining er svipuð innbrotsprófunum að því leyti að leitað er eftir öryggisveikleikum í tölvukerfinu. Stóri munurinn er hins vegar sá að ekki er reynt að misnota öryggisgallanna.
Með þessari aðferð er hægt að kortleggja veikleika og útfrá því er hægt að gera áætlun um endurbætur á tölvukerfinu sem oft felst aðallega í því að loka fyrir þá þjónustu sem ekki er verið að nota eða uppfæra þjónustu og hugbúnað sem er verið að nota.

 


© Stiki - Information Security - Laugavegur 176 - IS-105 Reykjavik - Phone: +354 5700 600