ÍslenskaEnska

Vitnisburðir

"Orðsporið sem af Stika fer ásamt þeirri kynningu sem stofnunin hefur af fyrirtækinu er að þar fari ábyrgir aðilar sem hafa náð árangri á sínu sviði."

Hafdís Guðmundsdóttir, skrifstofustjóri Fangelsismálastofnunar

Case Studies

Nethögun og fjarskipti Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Share

Stiki hefur mikla reynslu af uppbyggingu öruggra fjarskiptaneta þar sem ýmsum ráðstöfunum er beitt til að tryggja öryggi gagna í netsamskiptum. Öryggisstöðlunum ISO/IEC 27001 og ISO/IEC 27002 er beitt á kerfisbundinn hátt til að tryggja örugg samskipti. Lykilatriði er val á öryggisráðstöfunum sem hæfa eðli gagnanna sem senda á yfir viðkomandi net. Þar má nefna hentugar nettengingar, ýmist á lokuðu neti eða um Internetið, og netbúnað sem stenst öryggis- og afkastakröfur, þ.á m. eldveggi og beina. Nota má dulkóðun til að tryggja leynd gagna og til auðkenningar notenda. Að sama skapi verður að athuga ýmsa eiginleika nettenginga á borð við bandbreidd og senditíma til að tryggja tiltækileika gagna.

Heilbrigðisnet matskerfa

Stiki hefur haft með höndum hönnun og rekstur á öruggu lokuðu heilbrigðisneti, Heilbrigðisneti matskerfa, sem tengir saman fjölmargar stofnanir í heilbrigðisþjónustu um land allt. Á netinu eru rekin kerfin Stiki RAI Nursing Home, Stiki RAI Home Care, Stiki RAI Post-Acute care, Stiki RAI Mental Health og Stiki Vistunarmat. Þar sem unnið er með viðkvæmar persónuupplýsingar í þessum kerfum er upplýsingaöryggi afar mikilvægur þáttur á heilbrigðisneti matskerfa. Dulkóðun og skilríki eru notuð til þess að auðkenna notendur og tryggja öryggi í gagnasendingum. Stofnanir tengjast matskerfum sem hýst eru af Stika með sýndareinkanetstengingum (Virtual Private Network) yfir lokaðar víðnetstengingar, s.s. ISDN, ADSL+, Frame Relay og IP-net.

Líkanagerð og hermun

Stiki hefur einnig reynslu af líkanagerð af tölvunetum. Líkanagerð og hermun tölvuneta má nota til þarfagreiningar við uppbyggingu netkerfa og getur aðstoðað við hönnun nýrra neta og við breytingar á núverandi netum. Vönduð hönnun á nethögun leiðir til skilvirkari neta og lægri kostnaðar. Álags- og öryggisprófanir eru einnig mögulegar á netlíkönum auk þess sem hægt er að athuga áhrif innleiðingar nýrra tölvukerfa á núverandi tölvunet.

 


© Stiki - Information Security - Laugavegur 176 - IS-105 Reykjavik - Phone: +354 5700 600