ÍslenskaEnska

Vitnisburðir

"Það er skemmst frá að segja að afar vel gekk að eiga samvinnu við Stika í þessu sambandi sökum þess hve ráðleggingar fyrirtækisins voru hnitmiðaðar og auðskildar."

Stefán Ómar Jónsson,
bæjarritari og verkefnisstjóri öryggis- og skipulagsmála á bæjarskrifstofum Mosfellsbæjar

Case Studies

Sýn Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Share

Stiki stefnir að því að bjóða heildarlausn í upplýsingaöryggismálum. Það er markmið Stika að vörur og þjónusta fyrirtækisins uppfylli ávallt kröfur og væntingar viðskiptavina, starfsmanna og samstarfsaðila um notagildi og fagleg vinnubrögð. Það er stefna Stika að:

  • Tryggja að fyrirtækið þrói vörur sínar í samræmi við þá alþjóðlegu staðla sem við eiga og í gildi eru hverju sinni, sér í lagi upplýsingaöryggis- og gæðastaðla.
  • Tryggja viðskiptavinum tímanlega uppfærslur alls hugbúnaðar sem háður er breytingum á stöðlum án sérstaks endurgjalds annars en árlegs leigugjalds.
  • Fylgja lögum og reglum sem í gildi eru á markaðssvæði. Þar með talið virða höfundarrétt hlutaðeigandi aðila, m.a. á stöðlum og tryggja staðlastofnunum greiðslur fyrir afnot af stöðlum á tilsvarandi tungumáli (sem innheimt er af Stika).
  • Taka tillit til óska viðskiptavina og ábendinga þeirra um áherslur í vöruþróun. Veita viðskiptavinum góða og faglega þjónustu sem byggir á þekkingu, fagmennsku og heilindum starfsmanna og gagnkvæmu trausti milli aðila.
  • Gæta hagkvæmni í rekstri þannig að rekstur Stika skili viðskiptavinum góðri vöru og hámarksþjónustu fyrir umsamdar greiðslur og hluthöfum arði.
  • Bjóða fyrirtækjum og stofnunum vandaðar hugbúnaðarlausnir þar sem þekking og ráðgjöf er fléttuð inn í hugbúnað.
 


© Stiki - Information Security - Laugavegur 176 - IS-105 Reykjavik - Phone: +354 5700 600