| Innleiðing upplýsingaöryggis |
|
|
|
|
Share Með sífellt öflugri hugbúnaði og vélabúnaði, vaxandi notkun, nettengingum og ekki síst almennum aðgangi að Netinu eykst þörfin fyrir að tryggja öryggi gagna og búnaðar. Á sama tíma hefur orðið gríðarleg þróun í öryggismálum upplýsingakerfa sem m.a. má sjá af útkomu fjölmargra nýrra alþjóðlegra staðla á þessu sviði. Jafnframt hafa kröfur löggjafans á þessu sviði aukist, ekki síst varðandi meðferð persónuupplýsinga. Upplýsingaöryggi felur í sér að upplýsingar eru verndaðar fyrir margs konar ógnum í því skyni að tryggja samfelldan rekstur, lágmarka tjón og hámarka árangur. Upplýsingaöryggi má líta á sem leið til að varðveita:
Innleiðing upplýsingaöryggis felur í sér nokkra þætti svo sem áhættumat, gerð skipulagshandbóka, gerð áætlana um samfelldan rekstur og stefnumóturn. Upplýsingaöryggi er einnig varðveisla á öðrum eiginleikum s.s. rekjanleika upplýsinga, áreiðanleika, óhrekjanleika og ábyrgð. Með því að innleiða staðla um upplýsingaöryggi er leitast við að tryggja alla ofangreinda þætti með úttekt og endurskoðun á vinnutilhögun viðkomandi fyrirtækis eða stofnunar. Viðfangsefni alþjóðlegu öryggisstaðlanna ISO 27002 og ISO 27001 eru ekki einungis upplýsingakerfin sjálf heldur einnig öll vinna og búnaður sem þeim tengist. Þannig þarf m.a. að skilgreina hvernig umgengni notenda við upplýsingar og kerfi er háttað og setja niður vinnureglur þar að lútandi. |











