ÍslenskaEnska

Vitnisburðir

Ný og endurbætt útgáfa af áhættumatshugbúnaðinum RM Studio er komin út. Í útgáfu 3.0. eru níu staðlar innbyggðir í kerfið sem er mikil og góð viðbót við það. Áður var einungis einn staðall með kerfinu.  Notendur geta því valið þann staðal sem þeir vilja fá, einn eða fleiri.  Nú gefst notendum kostur á að setja inn ýmsa staðla, framkvæma frávikagreiningu (gap analysis) gagnvart þessum stöðlum.  Skýrslukerfið er nú orðið innbyggt í RM Studio og því þarf ekki að keyra skýrslukerfið MS Reporting Server samhliða RM Studio.  www.riskmanagementstudio.com

Case Studies

Samfelldur rekstur Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Share

Markmið stjórnunar á rekstrarsamfellu er að vernda mikilvæga starfsemi gegn áhrifum meiriháttar bilana og áfalla.

Mikilvægt er að fyrirtæki geri sér grein fyrir mögulegum afleiðingum áfalla og geri ráðstafanir til að minnka hættu á röskun í rekstri.

Áætlun um samfelldan rekstur/viðbragðsáætlun hefur það markmið að takmarka áhrif meiriháttar bilana og áfalla og flýta endurreisn starfseminnar sem fyrir bilun eða áfalli verður. Í slíkri áætlun eru m.a. tilgreindir aðilar með afmörkuð hlutverk í neyðarástandi og aðgerðir sem framkvæma skal til að endurreisa starfsemi.

Stiki býður ráðgjöf vegna stjórnunar rekstarsamfellu og aðstoð við gerð áætlunar um samfelldan rekstur. Stuðst er m.a. við staðalinn BS 25999

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. við Stika til að fá frekari upplýsingar.

 


© Stiki - Information Security - Laugavegur 176 - IS-105 Reykjavik - Phone: +354 5700 600