ÍslenskaEnska

Vitnisburðir

"Það er skemmst frá að segja að afar vel gekk að eiga samvinnu við Stika í þessu sambandi sökum þess hve ráðleggingar fyrirtækisins voru hnitmiðaðar og auðskildar."

Stefán Ómar Jónsson,
bæjarritari og verkefnisstjóri öryggis- og skipulagsmála á bæjarskrifstofum Mosfellsbæjar

Case Studies

Gæðastefna Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Tilgangur

Þessi gæðastefna lýsir áherslu stjórnar Stika á gæði vöru og þjónustu og að gæðin séu í samræmi við væntingar viðskiptavina. Stjórnin gerir sér grein fyrir að gæðamál eru stöðugt á dagskrá og vanda þarf til verka við úrlausn þeirra. Fagleg vinnubrögð eru lykillinn að árangri og því er þessi gæðastefna sett. Innleiðing og framkvæmd stefnunnar er mikilvæg til að fullvissa starfsmenn Stika og viðskiptavini um áherslur í gæðamálum. Stjórn Stika hefur samþykkt þessa stefnu og styður við framkvæmd hennar.

Umfang

Stefna þessi tekur til allra þeirra sem starfa hjá Stika eða samningsbundið fyrir Stika. Allir starfsmenn Stika og samningsbundnir viðskiptavinir bera ábyrgð á framkvæmd þessarar stefnu.

Markmið

Það er markmið Stika að vörur og þjónusta fyrirtækisins uppfylli ávallt kröfur og væntingar viðskiptavina og starfsmanna um fagleg vinnubrögð. Það er enn fremur markmið Stika að vera leiðandi á þeim sviðum sem fyrirtækið starfar á. Það er því stefna Stika að:

  1. Tryggja að fyrirtækið skili umsamdri þjónustu á umsömdum tíma.
  2. Veita viðskiptavinum góða og faglega þjónustu sem byggir á heilindum starfsmanna og gagnkvæmu trausti milli aðila.
  3. Gæta hagkvæmni í starfsemi þannig að rekstur Stika skili viðskiptavinum hámarksþjónustu fyrir umsamdar greiðslur, hluthöfum arði og starfsmönnum góðum launum.
  4. Beita aðferðum gæðastjórnunar þar sem allir starfsmenn taka virkan þátt í að vinna stöðugt að endurbótum.
  5. Veita starfsmönnum gott vinnuumhverfi og hvatningu í starfi. Styðja frumkvæði þeirra.
  6. Viðhalda og efla fagþekkingu starfsmanna.
  7. Fylgja lögum, reglugerðum og reglum sem lúta að rekstri Stika, stjórnsýslulögum, lögum um persónuvernd, upplýsingalögum og öðrum lögum sem kunna að eiga við.
  8. Fylgja öllum samningum sem Stiki er aðili að og varða gæðamál á einhvern hátt.

Leiðir að markmiði

Leiðir Stika að ofangreindum markmiðum eru að:

  1. Skipulagshandbók með verklagsreglum og verkferlum þar sem tekið er á gæðamálum verði viðhaldið og fylgt.
  2. Allir starfsmenn Stika fylgi skipulagshandbók og öllum öðrum fyrirmælum stjórnenda Stika.
  3. Allir starfmenn Stika fái þjálfun og fræðslu varðandi gæðamál og ábyrgð þeirra hvað gæðamál varðar.
  4. Öll starfsemi fylgi ISO 9001:2008 (ÍST EN ISO 9001:2008).
  5. Viðhalda faggildri vottun skv. ISO 9001:2008 (ÍST EN ISO 9001:2008).

Ábyrgð

Ábyrgð við framkvæmd og viðhald gæðastefnu skiptist á eftirfarandi hátt:

  1. Stjórn Stika ber ábyrgð á gæðastefnu þessari og endurskoðar hana reglulega.
  2. Skipulagsstjóri Stika ber ábyrgð á framkvæmd þessarar gæðastefnu með því að beita viðeigandi stöðlum og vinnuferlum.
  3. Allir starfsmenn Stika bera ábyrgð á að fylgt sé þeim vinnuferlum sem tryggja eiga framkvæmd gæðastefnunnar. Samstarfsaðilar, verktakar og birgjar bera ábyrgð á að samningsbundnum vinnuferlum sem tryggja eiga framkvæmd gæðastefnunnar sé fylgt.
  4. Allir starfsmenn Stika bera ábyrgð á að tilkynna frávik og galla sem varða afhendingu vöru og þjónustu eða væntingar viðskiptavina.

Endurskoðun

Þessi stefna er endurskoðuð árlega og oftar ef þörf krefur til að tryggja að hún samrýmist markmiðum með rekstri Stika.

Samþykki

Með samþykkt þessarar gæðastefnu fellur úr gildi gæðastefna sem samþykkt var af stjórn Stika þann 6. maí 2009.

Reykjavík, 24. febrúar 2010

Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri

 


© Stiki - Information Security - Laugavegur 176 - IS-105 Reykjavik - Phone: +354 5700 600