Tilgangur starfsmannastefnu Stika er að sameina hagsmuni og markmið starfsmanna, hluthafa og viðskiptavina um gott og faglegt starf.
Starfsmannastefna þessi tekur til allra starfsmanna Stika.
Starfsmannastefnunni er ætlað að vera hvatning jafnt fyrir starfsmenn og stjórnendur til þess að skapa faglegt, fjölskylduvænt og krefjandi vinnuumhverfi. Starfsskilyrði skulu vera sem best til þess að starfsmenn geti vaxið og dafnað í starfi.
a. Framtíðarsýn
Starfsmenn taka virkan þátt í að móta framtíðarsýn Stika ásamt stjórn fyrirtækisins. Sýn okkar er skýr, hún byggir á traustum grunni og mótast af einörðum vilja til að ná árangri.
b. Mannauður
Mannauður Stika er dýrmætasta auðlind fyrirtækisins. Við leggjum mikla áherslu á að hafa aðeins úrvalsstarfsmenn innan okkar raða.
c. Þekking og fagleg vinnubrögð
Hjá Stika eru þekkingaruppbygging og fagleg vinnubrögð höfð að leiðarljósi. Við störfum að ráðgjöf og þróun alþjóðlegra hugbúnaðarlausna fyrir innlendan og erlenda markaði. Viðskiptavinir okkar eru úr öllum geirum atvinnulífsins. Þeir eru kröfuharðir og við leggjum áherslu á að heiðarleiki og traust ríki í samskiptum.
d. Jafnrétti
Saman stöndum við vörð um jafnrétti og erum stolt af því að kynjahlutföll í fyrirtækinu skuli vera jöfn.
e. Starfsumhverfi
Við leggjum áherslu á hvetjandi starfsumhverfi þar sem faglegur metnaður, samstarf og liðsheild ráða ríkjum. Við kappkostum að skapa starfsmönnum okkar sem sem best starfsskilyrði til þess að vaxa og dafna í starfi og styðjum frumkvæði þeirra eins og kostur er.
f. Viðfangsefni
Viðfangsefni okkar eru alþjóðleg og eru m.a. fólgin í hönnun, þróun og rekstri á flóknum upplýsingakerfum sem byggja á nútímalegri tækni, upplýsingaöryggi og gæðum. Alþjóðlegar kröfur eru hafðar að leiðarljósi og við mætum þeim með beitingu alþjóðlegra staðla eins og við á.
g. Góð laun
Við leggjum áherslu á greiða starfsmönnum góð laun og samkeppnishæf á markaði, í samræmi við árangur og ábyrgð í starfi. Starfsmannasamtöl fara fram reglulega þar sem starfsmaður og yfirmaður hans fara saman yfir alla starfsþætti. Launaviðtöl fara fram árlega og oftar ef ástæða er til.
h. Starfsþróun og símenntun
Viðhald og efling fagþekkingar starfsmanna er mikilvæg fyrir Stika. Því er símenntun starfsmanna eðlilegur og sjálfsagður hluti af starfsemi Stika og starfsmenn sækja reglulega ráðstefnur og námskeið, bæði innanlands og utan. Starfsmenn Stika eru virkir þátttakendur í faghópum og félagsstarfi, bæði innan fagfélaga og hagsmunasamtaka, og flytja reglulega erindi á fagráðstefnum.
i. Vinnutími og vinnuumhverfi
Við bjóðum sveigjanlegt starfsumhverfi sem m.a. felur í sér sveigjanlegan vinnutíma, fjartengingu og möguleika á fjarvinnu.
j. Heilbrigði
Stiki hvetur starfsmenn sína til líkamsræktar og styrkir þá til íþróttaiðkunar með árlegum greiðslum íþróttastyrkja.
k. Félagslíf
Starfsmannafélagið Vektor skipuleggur ýmiss konar viðburði bæði innan vinnutíma og utan, s.s. leikhúsferðir, árshátíð og jólagleðskap. Makar eru alltaf velkomnir og á sumrin hittumst við með fjölskyldum okkar, grillum saman og gerum okkur glaðan dag.
l. Áhugamál
Hjá Stika starfar úrval sérfræðinga, bæði í tækni og viðskiptum. Við erum áhugafólk um okkar störf og sérsvið og temjum okkur fagmennsku fram í fingurgóma. Við gefum okkur einnig tíma fyrir áhugamál og stundum m.a. hljóðfæraleik, dans, stangveiðar, fjallaklifur, skíðamennsku, hjólreiðar, golf, tölvuleiki, knattspyrnu, ljósmyndun og margt fleira.
Stjórn Stika ber ábyrgð á starfsmannastefnu þessari og endurskoðar hana reglulega. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á framkvæmd hennar.
Þessi stefna skal endurskoðuð árlega og oftar ef þörf krefur til þess að tryggja að hún samrýmist markmiðum með rekstri Stika.
Með samþykkt þessarar starfsmannastefnu fellur úr gildi starfsmannastefna sem samþykkt var af stjórn Stika þann 6. maí 2009.
Reykjavík, 24. febrúar 2010