ÍslenskaEnska

Vitnisburðir

"Samvinna við Stika hefur tryggt Landlæknis- embættinu aðgang að ávallt nýjustu sérþekkingu og ráðgjöf um öryggismál og gert embættinu kleift að hlíta lögum, reglum og viðurkenndum stöðlum í upplýsingaöryggismálum."

Sigríður Haraldsdóttir
framkvæmdastjóri heilbrigðistölfræðisviðs Landlæknisembættisins

Case Studies

Vottanir Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Stiki lýtur stjórnkerfi upplýsingaöryggis skv. staðlinum ISO 27001 (vottunarskjal) og gæðakerfi skv. staðlinum ISO 9001:2008 (vottunarskjal) sem vottuð eru af bresku staðlastofnuninni, BSI.

Stiki hýsir og rekur kerfi sem innihalda viðkvæmar persónuupplýsingar fyrir heilbrigðisstofnanir. Stiki þekkir því af eigin raun þær ógnir sem steðja að upplýsingum, en veit að sama skapi hvernig bregðast skal við þeim og lágmarka líkur á að ógnir verði að veruleika.

Öryggisvottun skv. ISO 27001

Vilji stjórnendur fyrirtækja eða stofnana sýna með skýrum og óyggjandi hætti fram á stjórnun upplýsingaöryggis hjá fyrirtæki sínu er lögð fram greinargerð um stjórnkerfið, nokkurs konar stöðulýsing. Hún er jafnframt yfirlýsing um markmið og leiðir við stjórnun upplýsingaöryggis. Liggi þessi yfirlýsing fyrir geta aðilar sótt um faggilda vottun stjórnkerfisins skv. ISO 27001. Vottunaraðili er t.d. breska staðlastofnunin, BSI.

BSI er stærsti vottunaraðili í heiminum með meira en 40.000 viðskiptavini um allan heim, m.a. Vodafone, Ericson, Sony, NEC, 3M Healthcare, Eastman Kodak og fleiri. BSI tekur út og vottar fyrirtæki um allan heim og stuðlar þar með að bættum rekstri og stjórnun og lágmörkun á áhættu í meðferð og vinnslu upplýsinga.

Gæðavottun skv. 9001

Stiki er gæðavottað samkvæmt ISO 9001 og beitir þeim verkferlum sem sá staðall segir til um. Öll hugbúnaðargerð Stika er gæðavottuð.

ACP Vottun

Stiki er samstarfsaðili bresku staðlastofnunarinnar BSI. Vottun BSI þýðir að Stiki uppfyllir kröfur þær sem BSI setur til fyrirtækja sem veita þjónustu á sviði staðla, gæðamála og upplýsingaöryggis. Stiki er fyrsta fyrirtækið utan Bretlands sem hlýtur slíka vottun og eina fyrirtækið á Norðurlöndum.

Microsoft Gold Partner vottun

Stiki er gullvottaður samstarfsaðili Microsoft. Hérna getur þú séð vottuð fyrirtæki á Íslandi.

 


© Stiki - Information Security - Laugavegur 176 - IS-105 Reykjavik - Phone: +354 5700 600