Vitnisburðir
"Samvinna við Stika hefur tryggt Landlæknis- embættinu aðgang að ávallt nýjustu sérþekkingu og ráðgjöf um öryggismál og gert embættinu kleift að hlíta lögum, reglum og viðurkenndum stöðlum í upplýsingaöryggismálum." Sigríður Haraldsdóttir |
| Verkfræðistofan Stiki ehf. fær öryggis- og gæðavottun: |
|
|
|
| Föstudagur, 14. júní 2002 08:40 |
|
Verkfræðistofan Stiki hefur náð þeim áfanga að verða fyrsta íslenska fyrirtækið sem breska staðlastofnunin BSI (British Standards Institution) öryggisvottar. Skv. vefsíðunni http://www.stiki.is/ er Stiki meðal 126 fyrirtækja á alþjóðlegum lista yfir fyrirtæki sem hlotið hafa faggilda öryggisvottun skv. BS 7799. Það að vottanirnar eru faggildar þýðir að vottunaraðilinn sjálfur er vottaður. Það er breska löggildingarstofan UKAS (United Kingdom Accreditation Service) sem vottar BSI. Vottuð voru stjórnkerfi upplýsingaöryggis skv. öryggisstaðlinum BS 7799 og kerfi til gæðastjórnunar skv. ISO 9001. Þessar vottanir hafa mikla þýðingu fyrir Stika. Þær snúast um traust og vill Stiki með þeim sýna fram á og færa sönnur á öryggi og gæði í allri starfsemi fyrirtækisins. |











