Vitnisburðir
Ný og endurbætt útgáfa af áhættumatshugbúnaðinum RM Studio er komin út. Í útgáfu 2.2. er möguleiki á að setja inn fleiri staðla en ISO/IEC 27002 upplýsingaöryggisstaðalinn, sem eins og áður fylgir með hugbúnaðinum. Nú gefst notendum kostur á að setja inn ýmsa staðla, t.d. PCI DSS, CobIT, IT- Grundschutz og Coso, og framkvæmt frávikagreiningu (gap analysis) gagnvart þessum stöðlum.
|
| Fagnað hjá Stika |
|
|
|
| Þriðjudagur, 18. júní 2002 08:42 |
|
Tímamót hafa orðið hjá Stika. Í dag fögnum við 10 ára afmæli auk þess sem Stiki hefur nýlega hlotið vottanir frá bresku staðlastofnuninni BSI. Það styrkir enn frekar það traust sem viðskiptavinir Stika bera til fyrirtækisins. Vottuð voru stjórnkerfi upplýsingaöryggis skv. BS 7799 og kerfi til gæðastjórnunar skv. ISO 9001. Við þetta tækifæri eru kynnt ný upplýsingakerfi í heilbrigðisþjónustu til að meta heilsufar aldraðra sem Stiki hefur þróað og mun reka fyrir heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. Kerfin eru sérstaklega hönnuð m.t.t. öryggis upplýsinga. Heiðursgestur er hr. Jón Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. |
| Síðast uppfært: Þriðjudagur, 22. júní 2010 08:50 |












