Vitnisburðir
Ný og endurbætt útgáfa af áhættumatshugbúnaðinum RM Studio er komin út. Í útgáfu 2.2. er möguleiki á að setja inn fleiri staðla en ISO/IEC 27002 upplýsingaöryggisstaðalinn, sem eins og áður fylgir með hugbúnaðinum. Nú gefst notendum kostur á að setja inn ýmsa staðla, t.d. PCI DSS, CobIT, IT- Grundschutz og Coso, og framkvæmt frávikagreiningu (gap analysis) gagnvart þessum stöðlum.
|
| Niðurstöður ferilsathugunar (Case Study) BSI hjá Stika liggja fyrir |
|
|
|
| Miðvikudagur, 26. febrúar 2003 08:57 |
|
Í lok síðasta árs var Stika boðið að taka þátt í verkefni með bresku staðlastofnuninni BSI. Verkefnið snýst um að kynna kosti vottunar skv. BS 7799 á heimasíðu BSI. Gerðar eru ferilsathuganir (Case Studies) hjá ýmsum fyrirtækjum um allan heim sem fengið hafa vottun skv. BS 7799. Stiki er eitt þessara fyrirtækja. Nýlega lauk ferilsathugun (Case Study) BSI hjá Stika og er niðurstöðurnar birtar hér. Í verkefninu var farið yfir umfang starfsemi Stika, verkefni fyrirtækisins og skipulag starfseminnar. Innleiðing ISO 17799 var sérstaklega skoðuð auk uppbyggingar stjórnskipulags og öryggiskerfis. Stjórnendur svöruðu ýmsum spurningum, t.d. af hverju ákveðið var að sækja um vottun og hverjir helstu kostir vottunar séu. Þá var einnig lagt mat á þjónustu sem BSI veitir og vottunarferli BSI. Verkefnið felur í sér kynningu á Stika og einnig gefst tækifæri til að kynnast reynslu annarra fyrirtækja á heimasíðu BSI. Á þeim hluta vefs BSI þar sem fjallað er um upplýsingaöryggi (e. information security) er að finna sérstaka síðu sem tileinkuð er ferilsathugun (Case Studies). Þar er fjallað um innleiðingu upplýsingaöryggis hjá einstökum fyrirtækjum. Síðuna má finna hér. |












