ÍslenskaEnska

Vitnisburðir

"Samvinna við Stika hefur tryggt Landlæknis- embættinu aðgang að ávallt nýjustu sérþekkingu og ráðgjöf um öryggismál og gert embættinu kleift að hlíta lögum, reglum og viðurkenndum stöðlum í upplýsingaöryggismálum."

Sigríður Haraldsdóttir
framkvæmdastjóri heilbrigðistölfræðisviðs Landlæknisembættisins

Case Studies

Enn einn starfsmaður Stika lýkur prófi í úttektarstjórnun hjá BSI sem "Lead Auditor" Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Mánudagur, 10. mars 2003 09:03

Hjá Stika leggjum við mikla áherslu á kunnáttu og færni starfsmanna. Í því sambandi skiptir endurmenntun og þjálfun miklu máli og þörf fyrir hana er endurmetin reglulega.

Það er okkur því ánægjuefni að greina frá að Guðbrandur Guðmundsson verkfræðingur hjá Stika hélt nú í lok febrúar til Englands og sótti þar námskeið um úttektarstjórnun samkvæmt öryggisstaðlinum BS 7799 (BS 7799 - Lead Auditor Course). Námskeiðið stóð í viku og var haldið af BSI Business Solutions Ltd. sem er hluti af bresku staðlasamtökunum British Standards. Námskeiðinu lauk með prófi sem Guðbrandur stóðst og hlýtur hann þar með réttindi úttektarstjóra (Lead Auditor).

Guðbrandur er ekki fyrsti starfsmaður Stika til að sækja námskeið hjá BSI. Svana Helen Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Stika, hefur einnig hlotið réttindi úttektarstjóra (Lead Auditor).

BSI leggur mikið uppúr að námskeið á þeirra vegum séu vönduð og að þátttakendur nái vel saman í verkefnavinnu. Fjöldi þátttakenda er því takmarkaður hverju sinni. Námskeiðin njóta virðingar sem sést best á því að á námskeiðinu sem Guðbrandur sótti voru 11 þátttakendur frá 6 löndum.

Námskeiðið í úttektarstjórnun er sambland af fyrirlestrum og verkefnum. Farið var yfir allt efni staðalsins og hvernig honum er beitt við að meta öryggisógnir og veikleika. Einnig er farið yfir hvaða aðferðum má beita til að stýra áhættu, velja öryggisráðstafanir og byggja upp stjórnkerfi upplýsingaöryggis. Lögð er áhersla á aðferðafræði og verklag við úttektir, hvernig úttektarmaður undirbýr þær og hvernig hann safnar gögnum er tengjast þeim.

 


© Stiki - Information Security - Laugavegur 176 - IS-105 Reykjavik - Phone: +354 5700 600