ÍslenskaEnska

Vitnisburðir

"Mjög mikilvægt er að vernda viðkvæmar persónuupplýsingar til að gæta réttar einstaklingsins og enn fremur er mjög mikilvægt að upplýsingar séu meðhöndlaðar rétt og unnið vandlega úr þeim af mikilli nákvæmni."

Hafdís Guðmundsdóttir
skrifstofustjóri Fangelsismálastofnunar

Case Studies

Ráðstefna HTR um vistunarmat á Hótel Loftleiðum, mánudaginn 24. mars 2003 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Fimmtudagur, 20. mars 2003 09:04

Ráðstefnan er haldin af heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu og er ætluð öllum þeim sem koma að vistunarmati aldraðra. Stiki hefur undanfarnar vikur verið að ljúka við nýtt vistunarmatskerfi fyrir heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. Starfsmenn Stika munu á þessari ráðstefnu m.a. tala um notkun vistunarmatskerfisins og öryggi persónuupplýsinga. Ráðstefnan er haldin af heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu og er ætluð öllum þeim sem koma að vistunarmati aldraðra. Hún hefst kl. 8:30 og lýkur kl. 15:00 Dagskrá:  
kl. 8:30  Skráning.  
kl. 9:00  Ávarp Jóns Kristjánssonar heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.  
kl. 9:15  Vilborg Hauksdóttir deildarstjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu fjallar um lög og málefni aldraðra og reglugerð um vistunarmat.  
kl. 9:40  Pálmi V. Jónsson öldrunarlæknir talar fyrir hönd eftirlitsnefndar með vistunarmati aldraðra.  
Kaffihlé kl. 10:15 - 10:40. 
kl. 10:45 Oddur Ingimarsson læknanemi greinir frá reynslu af notkun vistunarmats í Reykjavík síðastliðin tíu ár. kl. 11:20 Oddný Vestmann, umsjónarmaður vistunarmats í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu fjallar  um skráningu og úrvinnslu gagna.  
Matarhlé 12:00-13:00
kl.13:00  Starfsmenn Stika ehf. Svana Helen Björnsdóttir framkvæmdastjóri, Bjarni Þór Björnsson tæknilegur framkvæmdarstjóri og Hjörleifur Pálsson kerfisstjóri segja frá rafvæðingu vistunarmats á landsvísu, fjalla um persónuvernd, uppbyggingu netkerfisins og notkun vistunarmatskerfisins.
kl. 14:35  Umræður.
kl. 15:00  Ráðstefnuslit.

Ráðstefnustjórar eru Hrafn Pálsson og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir.

 


© Stiki - Information Security - Laugavegur 176 - IS-105 Reykjavik - Phone: +354 5700 600