ÍslenskaEnska

Vitnisburðir

"Það skiptir Glitni miklu máli að vinna með fyrirtæki þar sem þekking og reynsla starfsmanna á upplýsingaöryggi er mikil."

Gísli Heimisson, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Glitnis

Case Studies

Starfsmaður Stika á BS 7799 námskeiði í Bretlandi Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Þriðjudagur, 15. júlí 2003 09:10

Nú í júli lauk Steffi Botzelmann kerfisverkfræðingur hjá Stika námskeiði hjá BSI (British Standard Institution) um innleiðingu upplýsingaöryggis.

Þátttakendur á námskeiðinu voru  nokkuð blandaður hópur , m.a. frá Brasilíu, Spáni og Danmörku. Sumir eru úttektarmenn sem vilja fá meira þekkingu á efninu, aðrir þurfa/vilja innleiða BS 7799 hjá sér og enn aðrir eru að innleiða upplýsingaöryggi hjá viðskiptavinum. Stiki var eina fyrirtækið sem var vottað meðal þeirra sem sendi  þátttakendur á námskeiðið. Samtals voru 15 nemendur sem var skipt í 3 hópa fyrir verkefnin. Kennari var Paul Bellard.

BSI leggur mikið upp úr að námskeið á þeirra vegum séu vönduð og að þátttakendur nái vel saman í verkefnavinnu. Fjöldi þátttakenda er því takmarkaður hverju sinni.

Farið var í gegnum innleiðingaferlið þar sem m.a. er skilgreind þörf viðskiptavina, eignir skilgreindar og metnar, skilgreina veikleikar (vulnerabilities), ógnir (threats), líkur á að áfall verði, áhrif á fyrirtækið þegar áfall verður, endurbygging (restoration) og út frá öllu þessu, áhættur, gerð stöðulýsingar og innleiðing ráðstafana.

Einnig hafa þau Svana Helen Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Stika, og Guðbrandur Guðmundsson, rafmagnsverkfræðingur, nýlega sótt námskeið hjá BSI, en þau hlutu réttindi sem úttektarstjórar (Lead Auditor)."

 


© Stiki - Information Security - Laugavegur 176 - IS-105 Reykjavik - Phone: +354 5700 600