ÍslenskaEnska

Vitnisburðir

"Samvinna við Stika hefur tryggt Landlæknis- embættinu aðgang að ávallt nýjustu sérþekkingu og ráðgjöf um öryggismál og gert embættinu kleift að hlíta lögum, reglum og viðurkenndum stöðlum í upplýsingaöryggismálum."

Sigríður Haraldsdóttir
framkvæmdastjóri heilbrigðistölfræðisviðs Landlæknisembættisins

Case Studies

Stiki fær verðlaun Útflutningsráðs fyrir bestu markaðsáætlunina. Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Föstudagur, 27. maí 2005 10:07

Sjö íslensk fyrirtæki hafa á undanförnu misseri tekið þátt í verkefninu Útflutningsaukning og hagvöxtur, sem Útflutningsráð Íslands stóð að í fimmtánda sinn.

Veitt voru verðlaun fyrir bestu markaðsáætlunina og var Stiki hlutskarpastur að þessu sinni með markaðsáætlun fyrir Stika OutGuard á Bretlandsmarkað.

Þau fyrirtæki sem tóku þátt í verkefninu eru auk Stika, Skýrr, Trico, Aurum, Ragna Fróða, Ferðaskrifstofa Austurlands og Truenorth. Meðal fyrirtækja sem áður hafa hlotið þessa viðurkenningu eru Bakkavör og Össur.

Auk Útflutningsráðs standa Samtök iðnaðarins, Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, Byggðastofnun og Bakkavör að verkefninu.

 


© Stiki - Information Security - Laugavegur 176 - IS-105 Reykjavik - Phone: +354 5700 600