| Íslensk fyrirtæki kynnt á sprotaþingi í New York |
|
|
|
| Mánudagur, 05. desember 2005 10:15 |
|
SPROTAÞING var haldið nýlega í New York og voru tvö íslensk fyrirtæki meðal þeirra níu sem þar kynntu viðskiptahugmyndir sínar, þ.e. Stiki og 3-Plus. SPROTAÞING var haldið nýlega í New York og voru tvö íslensk fyrirtæki meðal þeirra níu sem þar kynntu viðskiptahugmyndir sínar, þ.e. Stiki og 3-Plus. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var viðstaddur þingið og var með framsögu á fréttamannafundi í tengslum við það. Þar talaði einnig hinn norsk-íslenski framkvæmdastjóri Operu-hugbúnaðarhúss, Jón S. Von Tetzchner. Ræddi hann um samkeppnisumhverfið og leiðir til að ná markaðslegu forskoti. |











